| Isländisch | Deutsch | |
Teilweise Übereinstimmung |
| Mig langar að kaupa bíl en ég hef ekki næga peninga. | Ich möchte ein Auto kaufen, aber ich habe nicht genug Geld. | |
| Pítsa bragðast vel, en maður getur líka étið yfir sig af henni! | Pizza schmeckt gut, man kann sich aber auch daran überessen! | |
| Sem stendur er mikið að gera hjá mér, en það tekur enda. | Zurzeit bin ich sehr beschäftigt, aber das gibt sich wieder. | |
| Stærðfræði liggur ekkert sérstaklega vel fyrir honum en hann getur sungið frábærlega. | Mathematik liegt ihm nicht besonders, aber er kann hervorragend singen. | |
| Sumum finnst þetta dálítið strangt, en ég þekki ekkert annað. | Manche finden das ein wenig streng, aber ich kenne es nicht anders. | |
| Við hefðum sótt þig, en því míður var bíllinn okkar bilaður. | Wir hätten dich abgeholt, aber leider war unser Auto kaputt. [ugs.] | |
| Við ýttum á bílinn en hann bifaðist ekki. | Wir haben versucht, das Auto zu schieben, aber es bewegte sich nicht von Fleck. | |
| Það er raunar bannað, en ég gerði það samt. | Es ist zwar verboten, aber ich habe es trotzdem gemacht. | |
| Ég á marga vini, en hann er ekki þar á meðal. | Ich habe viele Freunde, aber er ist nicht dabei. | |
| Ég skil þetta en finnst það samt ekki gott. | Ich verstehe das ja, aber trotzdem finde ich's nicht gut. | |
| Böðullinn reiddi öxi sína til höggs, en höggið geigaði hjá honum. | Der Henker hob sein Beil zum Hieb, aber der Hieb traf nicht. | |
| Ég bað hann um að hætta að tala en hann hélt samt áfram. | Ich bat ihn, mit reden aufzuhören, aber er machte weiter. | |
| Konan kærði nauðgun, en lögreglan aðhafðist ekkert í málinu. | Die Frau zeigte wegen Vergewaltigung an, aber die Polizei unternahm nichts in der Sache. | |
| Leikkonan þarf að ná einbeitingu áður en hún fer á sviðið. | Die Schauspielerin muss sich erst sammeln, bevor sie auf die Bühne geht. | |
| Línudansmærin missti jafnvægið í augnablik en náði því svo aftur. | Die Seiltänzerin verlor für einen Augenblick die Balance, konnte sich aber wieder fangen. | |
| Þetta handklæði er notað, en ég get látið þig hafa hreint. | Dieses Handtuch ist schon benutzt, aber ich kann dir ein frisches geben. | |
| Ég kann vel við ensku en ég get ekki talað hana vel. | Ich mag Englisch, aber ich spreche es nicht gut. | |
| Ég veit ekki með þig, en ég er svangur. | Ich weiß ja nicht, wie es dir geht, aber ich habe Hunger. | |
| Ég vildi gjarnan hjálpa þér en ég get það ekki. | Ich täte dir gern helfen, aber ich kann nicht. [ugs.] [südd.] | |
| Þú varst ekki þar, en þú misstir heldur ekki af neinu. | Du warst nicht da, aber du hast auch nichts versäumt. | |
| Ég er búin að spyrja hana ótal sinnum en hún svarar mér aldrei. | Ich habe sie schon x-mal gefragt, aber sie antwortet nie. | |
| Ég get ekki sagt að hvaða leyti annað er betra en hitt. | Ich kann nicht sagen, inwiefern das eine besser ist als das andere. | |
| Hún ætlaði að kaupa síðasta eintakið en ég skaut henni ref fyrir rass. | Sie wollte das letzte Exemplar kaufen, aber ich bin ihr zuvorgekommen. | |
| Bíllinn er að vísu fallegur, en hann er samt eitthvað ryðgaður. | Der Wagen ist zwar schön, aber er ist doch etwas verrostet. | |
| Ég vissi það reyndar, en hvað hefði ég átt að gera? | Ich habe es wohl gewusst, aber was hätte ich machen sollen? | |
| Hann er góður lögfræðingur en bráður og erfiður í skapi. | Er ist ein guter Anwalt, aber er auch ist hitzig und launisch. | |
| Bóndinn heldur hænur, hesta og sauðfé á búi sínu, en engar kýr. | Der Bauer hält Hühner, Pferde und Schafe auf seinem Hof, aber keine Kühe. | |
| Ég þekki hann einhvers staðar frá en get ekki sem stendur fundið honum stað. | Ich kenne ihn irgendwoher, kann ihn im Moment aber nicht zuordnen. | |
| Hann ætlaði líka að kaupa þessa fínu lóð en ég var fyrri til. | Er wollte dieses schöne Grundstück auch kaufen, aber ich bin ihm zuvorgekommen. | |
| Ég ætlaði að halda áfram að spjalla, en hún var þá búin að leggja á. | Ich wollte weiterreden, aber sie hatte schon aufgehängt. | |
| Ísland lítur allt öðruvísi út en ég hafði gert mér í hugarlund. | Island sieht ganz anders aus, als ich (es) mir vorgestellt habe. | |
| Mig vantar en 100 evrur, þá get ég keypt mér tölvuna. | Mir fehlen noch 100 Euro, dann kann ich mir den Computer kaufen. | |
| Áhugamálið tekur mikinn tíma en hann segist mæta skilningi heima fyrir. | Das Hobby kostet viel Zeit, aber er sagt, dass er zu Hause auf Verständnis trifft. | |
| Hún er með dökkt og frekar sítt hár, en ég er með ljóst hár. | Sie hat dunkles und ziemlich langes Haar, aber ich habe blondes Haar. | |
| Hún kippti þvottinum af snúrunni rétt áður en það fór að rigna. | Sie raffte die Wäsche gerade noch rechtzeitig von der Leine, bevor der Regen begann. | |
| Í byrjun meiddu nýju skórnir mig aðeins, en nú hefur það lagast. | Anfangs drückten mich die neuen Schuhe ein wenig, aber das hat sich inzwischen gegeben. | |
| Viðleytni hans verður ekki af honum skafin, en farsæll var hann ekki. | Ich will ihm ja den guten Willen nicht absprechen, aber erfolgreich war er nicht. | |
| Það get ég ekki sagt þér fyrr en ég hef talað við hann. | Das kann ich dir nicht sagen, ehe ich nicht mit ihm gesprochen habe. | |
| Þau hafa gift sig - en það má segja að það hafi ekki komið mér á óvart. | Sie haben geheiratet - nebenbei gesagt, hat mich das nicht überrascht. | |
| Hans rétta nafn er Georg, en allir kalla hann „Schorsch“. | Sein richtiger Name ist Georg, aber alle rufen ihn „Schorsch“. | |
| Hann þykist vera listunnandi, en í raun skilur hann ekki mikið í henni. | Er gibt sich gern als Kunstkenner, aber in Wirklichkeit versteht er nicht viel davon. | |
| Við borgum stöðugt af lánunum en ekkert virðist grynnka á skuldunum. | Wir zahlen die ganze Zeit unsere Kredite ab, aber die Schulden scheinen nicht weniger zu werden. | |
| tilvitn. Það er hvorki hættulegt né skammarlegt að detta, en að liggja kyrr er hvort tveggja. | Fallen ist weder gefährlich noch eine Schande. Liegenbleiben ist beides. [Konrad Adenauer] | |
| Ég ætti að borða minna, en þegar kemur að súkkulaði stenst ég ekki mátið. | Ich sollte weniger essen, aber bei Schokolade kann ich nicht widerstehen. | |
| Það er gert virkilega lítið úr þessu en í rauninni var það miklu verra! | Das ist aber wirklich untertrieben, in Wirklichkeit war es viel schlimmer! | |
| Bóndinn hafði kýrnar inni í fjósi en sauðféð á beit úti í haga. | Der Bauer hielt die Kühe (drinnen) im Kuhstall, aber die Schafe draußen auf der Weide. | |
| Það kom sér vel að hann hafði lært spænsku áður en hann fór til Argentínu. | Es machte sich bezahlt, dass er Spanisch lernte, bevor er nach Argentinien fuhr. | |
| Hann er slakur í stærðfræði, en þess í stað góður í fótbolta. | In Mathematik ist er schlecht, dafür kann er gut Fußball spielen. | |
| Þér skjátlast - hann á afmæli í júní, en ekki í júlí. | Du hast dich geirrt - er hat im Juni Geburtstag, nicht erst im Juli. | |
| Nauðungaruppboð fasteigna er leiður en óhjákvæmilegur fylgifiskur ef íbúðarhúsnæði er fjármagnað með veðlánum. | Die Zwangsversteigerung von Immobilien ist eine unangenehme, aber unvermeidliche Begleiterscheinung, wenn Wohngebäude durch Hypotheken finanziert werden. | |