| Isländisch | Deutsch | |
Teilweise Übereinstimmung |
| Hvar er fjandans lykillinn? Æ, þarna er hann! | Wo steckt nur der verfluchte Schlüssel? Ach, da ist er ja! | |
| Líklega er kanill í kökunni, allavega smakkast hún þannig. | Wahrscheinlich ist Zimt in dem Kuchen, jedenfalls schmeckt er danach. | |
| Það er engin hæfa í því sem hann segir. | Es ist völlig aus der Luft gegriffen, was er sagt. | |
| Það leynir sér ekki að hann er frá Bæjaralandi. | Es lässt sich nicht verleugnen, dass er aus Bayern kommt. | |
| "Þar með er ekki öll sagan sögð!" bætti hann við. | "Damit ist aber noch nicht alles gesagt!" legte er nach. | |
| Ég á marga vini, en hann er ekki þar á meðal. | Ich habe viele Freunde, aber er ist nicht dabei. | |
| Hann ætlar að hringja um leið og hann er kominn heim. | Er will anrufen, sobald er zu Hause angekommen ist. | |
| Hann er sykursjúkur og verður að sprauta sig kvölds og morgna. | Er ist Diabetiker und muss morgens und abends spritzen. | |
| Hann er veimiltíta, hann verður sár af minnsta tilefni. | Er ist eine Mimose, er fühlt sich beim geringsten Anlass gekränkt. | |
| Hann þarf að vera með gleraugu því að hann er nærsýnn. | Er muss eine Brille tragen, weil er kurzsichtig ist. | |
| Vegabréfið er ekki lengur í gildi, það rann út í gær. | Der Pass gilt nicht mehr, er ist gestern abgelaufen. | |
| Við önnumst kött nágrannans á meðan hann er í burtu. | Wir versorgen die Katze des Nachbarn, solange er weg ist. | |
| Hann er á leiðinni til München núna. | Er ist gerade nach München unterwegs. | |
| Hann er 40 ára eða eldri. | Er ist 40 Jahre oder darüber. | |
| Hann er líkast til um 50 ára gamall. | Er mag etwa 50 Jahre alt sein. | |
| Eftir fimmtu umferð er hann enn í þriðja sæti. | Nach der fünften Runde liegt er immer noch auf dem dritten Platz. | |
| Eftir svipbrigðum hans að dæma er hann óánægður með niðurstöðuna. | Nach seinem Gesichtsausdruck zu urteilen, ist er unzufrieden mit dem Ergebnis. | |
| Hann er vel að sér í hljóðfræði sem og í málvísindum. | Er ist sowohl mit Phonetik wie mit Linguistik bestens vertraut. | |
| Hún hæfir honum vel, hún er álíka metnaðargjörn og hann. | Sie passt gut zu ihm, sie ist genauso ehrgeizig wie er. | |
| Það er alger hneisa að hann skuli hafa fengið stöðuna. | Es ist ein absoluter Skandal, dass er die Stelle bekommen hat. | |
| Það er engin trygging fyrir því að hann kjafti ekki frá neinu. | Das ist keine Garantie dafür, dass er nichts verrät. | |
| Hann er doktor í eðlisfræði. | Er ist Doktor der Physik. | |
| Hann er leigubílstjóri í Reykjavík. | Er ist Taxifahrer in Reykjavík. | |
| Bíllinn er að vísu fallegur, en hann er samt eitthvað ryðgaður. | Der Wagen ist zwar schön, aber er ist doch etwas verrostet. | |
| Ég hef ekki náð í hann, hann er yfirleitt sjaldan heima. | Ich habe ihn nicht erreicht, er ist überhaupt selten zu Hause. | |
| Ég hef gert mér rangar hugmyndir um hann, hann er ekki heiðarlegur. | Ich habe mich in ihm getäuscht, er ist nicht ehrlich. | |
| Hann er góður lögfræðingur en bráður og erfiður í skapi. | Er ist ein guter Anwalt, aber er auch ist hitzig und launisch. | |
| Hann er makráður að eðlisfari, gefinn fyrir góðan mat og vín. | Er ist von Natur aus bequem, liebt gutes Essen und Wein. | |
| Hann fór að dæmi föður síns og er líka orðinn læknir. | Er ist dem Beispiel seines Vaters gefolgt und ebenfalls Arzt geworden. | |
| Jafnvel þó hann sé vinur minn er ég ekki sammála þessu. | Auch wenn er mein Freund ist, bin ich nicht damit einverstanden. | |
| Hann er 18 ára gamall og þar með orðinn sjálfráða. | Er ist 18 Jahre alt und demnach volljährig. | |
| Ég veðja hverju sem er um að hann kemur aftur of seint. | Ich gehe jede Wette ein, dass er wieder zu spät kommt. | |
| Hann er mjög fær, við hliðina á honum virkar bróðir hans ferlega klaufalegur. | Er ist sehr gewandt, daneben wirkt sein Bruder richtig ungeschickt. | |
| Þú ættir að upplýsa hann, hann er jú yfirmaður þinn, hvað sem öðru líður. | Du solltest ihn informieren, er ist schließlich dein Vorgesetzter. | |
| Hann er 10 ára. | Er ist 10 Jahre alt. | |
| Hann er mjög fyndinn þegar sá gállinn er á honum. | Er kann sehr lustig sein, wenn er in Stimmung ist. | |
| Hann getur ekki greint á milli þess sem mikilvægt er og þess sem skiptir minna máli. | Er kann nicht zwischen Wichtigem und Unwichtigem unterscheiden. | |
| Er það rétt að honum hafi verið sagt upp? Já, það er rétt! | Stimmt es, dass er entlassen wurde? Ja, stimmt! | |
| Hann drekkur allt of mikið, það er virkilega dapurlegt hvernig fyrir honum er komið. | Er trinkt viel zu viel, es ist wirklich schade um ihn. | |
| Hann er svo óverklaginn að hann getur ekki einu sinni skipt um dekk. | Er ist so unpraktisch, dass er nicht einmal einen Reifen wechseln kann. | |
| Þú verður að gera eins og hann segir, alltént er hann yfirmaður þinn. | Du musst schon tun, was er sagt, schließlich ist er dein Chef. | |
| Hann er í Berlín. | Er ist in Berlin. | |
| Hann leggur upp í ferð á morgun og er ekki enn byrjaður að pakka niður. | Er verreist morgen und hat noch nicht mit dem Packen angefangen. | |
| Það er í tómu tjóni og er farið að fara í taugarnar á mér. | Das ist ein totaler Schlamassel, und er geht mir auf die Nerven. | |
| Hann er mikið á ferðinni og því oft erfitt að ná í hann. | Er ist oft unterwegs und darum meist schwer zu erreichen. | |
| Hann er slakur í stærðfræði, en þess í stað góður í fótbolta. | In Mathematik ist er schlecht, dafür kann er gut Fußball spielen. | |
| Í fyrsta lagi á hann ekki bíl, í öðru lagi er hann ekki með bílpróf. | Erstens hat er kein Auto, zweitens keinen Führerschein. | |
| Það er líklegt að hann verði enginn aufúsugestur hjá okkur eftir þetta. | Es ist wahrscheinlich, dass er danach bei uns kein gerne gesehener Gast (mehr) sein wird. | |
| Þegar hann heyrir að einhver er með teiti, halda honum engin bönd (lengur). | Wenn er hört, dass jemand eine Party gibt, ist er nicht (mehr) zu halten. | |
| Hann er mikill aðdáandi Borussia Dortmund. | Er ist ein begeisterter Anhänger von Borussia Dortmund. | |