| Isländisch | Deutsch | |
Teilweise Übereinstimmung |
| Þessi aðferð hefur fram til þessa reynst okkur mjög vel. | Mit dieser Methode sind wir bislang immer ganz gut gefahren. | |
| Ég get þetta ekki, ég vil það ekki heldur. | Ich kann es nicht, ich will es auch nicht. | |
| Vilt þú ná í glas, ... og líka einn stól. | Würdest Du ein Glas, ... und auch einen Stuhl holen. | |
| Ég er alltaf til í glas af víni. | Für ein Glas Wein bin ich immer zu haben. | |
| Hann fékk gítar að gjöf og getur líka spilað á hann. | Er bekam eine Gitarre geschenkt und kann auch schon darauf spielen. | |
| Mig munar ekkert um að kaupa samloku fyrir þig líka. | Es macht mir nichts aus, auch für dich ein Sandwich zu kaufen. | |
| Pítsa bragðast vel, en maður getur líka étið yfir sig af henni! | Pizza schmeckt gut, man kann sich aber auch daran überessen! | |
| Við erum að fara að versla núna, vilt þú ekki líka koma með? | Wir gehen jetzt einkaufen, willst du nicht auch mit? | |
| Á þessum fyrirlestri mátti líka bera fram spurningar inn á milli. | Bei diesem Vortrag durfte man auch Zwischenfragen stellen. | |
| Það er teiti hjá Peter, ætlar þú líka þangað? | Es ist ein Fest bei Peter, willst du auch hingehen? | |
| Með lögfræðilegum bellibrögðum fer hann enn og aftur í kringum lögin. | Mit juristischen Winkelzügen hebelt er immer wieder die Gesetze aus. | |
| Sem ljósmyndari var hún alltaf að leita að fallegu myndefni. | Als Fotografin war sie immer auf der Suche nach schönen Motiven. | |
| Getur þú fært þig aðeins til svo að ég fái líka sæti? | Kannst du ein wenig rutschen, damit ich auch noch Platz habe? | |
| Hann var útúrdrukkinn. Í ofanálag hafði hann líka gleypt töflur. | Er war vollkommen betrunken. Hinzu kam, dass er auch noch Tabletten geschluckt hatte. | |
| Láttu ekki alltaf vaða svona yfir þig, segðu hvað þú vilt! | Lass dich doch nicht immer so überfahren, sag, was du willst! | |
| Þú varst ekki þar, en þú misstir heldur ekki af neinu. | Du warst nicht da, aber du hast auch nichts versäumt. | |
| Við búum þarna hinu megin og rétt þar hjá er líka sundlaug. | Da drüben wohnen wir, und ganz nahe dabei ist auch ein Schwimmbad. | |
| Natascha er alltaf upplýst um það sem gerist í heiminum. | Natascha ist immer darüber informiert, was in der Welt passiert. | |
| Hann er góður lögfræðingur en bráður og erfiður í skapi. | Er ist ein guter Anwalt, aber er auch ist hitzig und launisch. | |
| Jafnvel þó hann sé vinur minn er ég ekki sammála þessu. | Auch wenn er mein Freund ist, bin ich nicht damit einverstanden. | |
| Karl og Inge ætla að eyða ævinni saman. | Karl und Inge wollen für immer zusammenbleiben. | |
| Eftir fimmtu umferð er hann enn í þriðja sæti. | Nach der fünften Runde liegt er immer noch auf dem dritten Platz. | |
| Hann ætlaði líka að kaupa þessa fínu lóð en ég var fyrri til. | Er wollte dieses schöne Grundstück auch kaufen, aber ich bin ihm zuvorgekommen. | |
| Í hópi svo margra epla verða víst líka nokkur skemmd þar á meðal. | Bei so vielen Äpfeln werden wohl auch ein paar schlechte darunter sein. | |
| Alltaf þegar hún yfirgaf herbergið, tóku starfssystur hennar að níða hana niður. | Immer wenn sie das Zimmer verließ, zogen ihre Kolleginnen über sie her. | |
| Vilt þú kannski og Siggi líka hjálpa mér að tala íslensku? | Würdest Du, und auch Siggi, mich vielleicht dabei unterstützen, Isländisch zu sprechen. | |
| Þú þegir auk þess um það að þú hefur líka gert ýmislegt rangt. | Du unterschlägst dabei, dass du auch vieles falsch gemacht hast. | |
| Ég geri mér litla íbúð að góðu ef hún hefur svalir. | Ich gebe mich auch mit einer kleinen Wohnung zufrieden, wenn sie nur einen Balkon hat. | |
| Hann reynir alltaf að afsaka sig með því að hann sé nýr hér. | Er versucht sich immer damit zu rechtfertigen, dass er hier neu ist. | |
| Hvað mig snertir getur þú spurt alla, þú færð allsstaðar sama svarið. | Von mir aus kannst du jeden fragen, du wirst immer das Gleiche hören. | |
| Miðinn vill ekki tolla á flöskunni, hann dettur alltaf aftur af. | Das Etikett will nicht auf der Flasche haften bleiben, es geht immer wieder ab. | |
| Það var alltaf svo gaman að kíkja í kaffi hjá Sissu frænku. | Es war immer so nett, auf eine Tasse Kaffee bei Tante Sissa vorbeizuschauen. | |
| Ég er enn að leita að ástæðunni fyrir því að ljósið blikkar. | Ich suche immer noch die Ursache für das Flackern der Lampe. | |
| Með brautarstöðina á hægri hönd ekur þú beint áfram þar til þú kemur að leikhúsinu. | Du lässt den Bahnhof rechts liegen und fährst immer geradeaus bis zum Theater. | |
| Ég sé alls ekki hvers vegna ég á alltaf að vinna alla vinnuna. | Ich sehe überhaupt nicht ein, warum ich immer die ganze Arbeit machen soll. | |
| Í rauninni er hann prófessor, en aukalega skrifar hann líka gagnrýni fyrir blöðin. | Eigentlich ist er Professor, aber nebenbei schreibt er auch noch Kritiken für Zeitungen. | |
| Þó það kunni að vera nokkuð kalt, ætla ég samt sem áður að fara á hjólinu. | Mag es auch noch so kalt sein, ich werde trotzdem mit dem Rad fahren. | |
| bibl. Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skulið þér og þeim gjöra. | Was du nicht willst, dass man dir tu, das füg auch keinem andern zu. [Tob. 4,16; Luther 1984] | |